Spurningar úr hlutum VIII og IX í Englum alheimsins
Hluti VIII (bls. 157-178)
1. Um hvað eru Brynjólfur og Páll að ræða? Hvað vill Brynjólfur að Páll geri?
Svar: Þeir eru að tala um að Páll vilji ekki fara í föndrið og Brynjólfur heldur að það sé vegna þess að
Páll heldur að hann sé fínni en aðrir. Brynjólfur vill að Páll taki þátt í starfseminni.
2. Hvernig er Pétri lýst? Hver er skýring sögunnar á veikindum Péturs? Hvernig lýsa þau sér? Hvað gerist eftir að kærasta Péturs fer?
Svar: Pétur hlustar mikið á Grateful Dead og bandaríska sýrutónlist. Hann var ótrúlega grannur og kinnfiskasoginn, með stór
blá augu, dökka bauga og andlitið eirðarlaust, skollitað, axlasítt hár sem var þykkt og mikið. Pétur tók inn sýru, hoppaði út um
glugga og hlaut heilaskaða en fólk á þessum tíma hélt að það væri bara sturlun. Hann gekk um gangana eins og brjálæðingur
úr leikriti og það var ekki hægt að ná sambandi við hann. Eftir að Jóhanna, kærasta Péturs, fór hljóp Pétur að harðlæstum dyrum
deildarinnar, barði á hurðina og hrópaði nafn hennar.
3. Lýsið Óla bítli. Lýsið Viktori. Hvaða fleygu setningu segir Páll við Brynjólf og af hvaða tilefni?
Svar: Óli er grunsamlega líkur Jesú Kristi en er þó með þynnra hár, næstum þvi sköllóttur á kollinum en á hliðunum er hár hans
sítt og fellur yfir eyrun. Hann talar ekki mikið en segist semja lög fyrir Bítlana og senda þeim í hugskeytum. Hann hefur verið lengst
á Kleppi af vinunum.
Viktor er kurteis, háfleygur og vel máli farinn. Hann talar fjálglega um gríska harmleiki og sonnettur úr Shakespeare. Hann er líka
lyfjafræðingur. Viktor veit allt um Adolf Hitler, eða Dolla eins og hann kallar hann, og bregður sér stundum í gervi hans.
Brynjólfur er að tala um hvað honum finnist skrítið að Sláturfélag Suðurlands sætti sig við sömu skammstöfun og stormsveitir
Hitlers. Þá sagði Palli: "Ef þú heldur svona áfram er ég ansi hræddur um að við verðum að skipta um stól."
4. Segið frá bæjarferðum Óla bítils og samskiptum hans við forsetann.
Svar: Eitt sinn fór Óli með Páli heim til foreldra hans í Breiðholtið og fékk lánaða bók. Skilaði henni þó aftur því hann gat ekki lesið
nema tvær línur, þá vissi hann ekki lengur hvað hann var að lesa. Hann rabbaði við allskyns fólk og oft talaði hann við þekkt fólk.
Einn daginn fór hann til forsetans og ræddi við hann um lagasmíðar. Óli spyr svo hvort hann mætti ekki vera forseti þegar hinn léti
af embætti. Forsetinn sagði að Óli yrði líklega prýðilegur forseti. Einnig spyr Óli hvort að hann mætti ekki fá bílinn eitthvað fyrr,
forsetinn sagði að það hlyti að vera. Nokkrum dögum síðar, í annarri bæjarferð, týndi Eysteinn, gæslumaður, honum Óla en þá hafði
Óli séð forsetabílinn og náði að koma sér inn í hann og ók burt.
5. Hvert fóru Eysteinn, Pétur og Páll? Til hvers? Hvernig endaði það?
Svar: Þeir fóru í Háskóla Íslands til að leita að ritgerð Péturs sem hann hafði sent til Kína. Ritgerðin fannst ekki og kom í ljós að hún var
bara ímynduð. Pétur vissi það þó líklega innst inni.
6. Hvernig var samband Péturs við foreldra sína? Hvar bjó hann áður en hann fór á Klepp?
Svar: Þegar hann var heima, hjá foreldrum sínum, gekk hann illa um og fékk oft bræðisköst. Systkini hans hættu að koma með vini sína
í heimsókn og vinir þeirra hurfu. Móðir hans neitaði að sitja uppi með hann. Pétur bjó á sambýlum en einnig á götunni áður
en hann fór inn á Klepp.
7. Hvað varð um Pétur?
Svar: Pétur stökk út um gluggann á svefnherberginu, lenti í snjóskafli, gekk svo áfram í sjóinn (en eins og við vitum er Kleppur við ströndina).
Hann rak svo á land þremur dögum seinna.
Hluti IX (bls. 179-200)
1. Hvernig dó faðir Viktors? Hvernig brást Viktor við föðurmissinum?
Svar: Pabbi Viktors fórst með trillu. Viktor trúði því að pabbi hans væri fastur á eyðieyju og beið alltaf eftir honum á bryggjunni. Sá hann
líka og heyrði alltaf í honum.
2. Hvað ætlaði Viktor að verða fyrst? Hvernig hófust kynni Viktors af lyfjum og hvaða áhrif höfðu þau á námsferil hans?
Svar: Viktor ætlaði að verða rafvirki. Hann hafði verið að læra hjá meistara en var svo lélegur í öllu verklegu. Þá gáfu taugarnar sig og hann
kynntist lyfjunum. Lyfin leiddu til þess að hann fór að læra lyfjafræði, sem leiddi hann í latínu og latínan leiddi hann í bókmenntir.
3. Hvers vegna var Viktor lagður inn á lokað geðspítala í London? Hvað var gert við hann þar? Hvers vegna veitti bankastjórinn Viktori lán,
þó hann væri bæði geðveikur og eignalaus?
Svar: Viktor fór að klæða sig og láta eins og Adolf Hitler og neitaði að tala annað tungumál en þýsku, þegar sá gallinn var á honum. Hann var
settur inn í stóran sal og fór í raflostmeðferð. Hann fékk lán því hann kom vel fyrir og sagðist starfa við þýðingar og væri nýfluttur til landsins.
4. Um hvað ræða Páll og Viktor? Hver segir: “Við erum englar. Englar alheimsins.”? Hvað ákveða þeir að gera í lok kaflans?
Svar: Þeir tala um hvort þeir eigi að fara í jarðarförina. Páll segir titil bókarinnar. Með hjálp Óla ákveða þeir að fara að jarðarförinni en vera
samt ekki viðstaddir hana.
5. Hvernig líta félagarnir út? Hvað gera þeir áður en þeir fara á Grillið? Hvers vegna haldið þið að þjónarnir sjái ekki að þarna eru þrír geðveikir
menn að svíkja sér út máltíð?
Svar: Viktor var í fínum svörtum jakkafötum, svörtum frakka, með regnhlíf og í svörtum spariskóm. Páll keypti sér ný föt, hinir sjúklingarnir
sögðu hann líta út eins og miðaldra kaupmann. Systir Óla kom með gömul svört jakkaföt sem Óli hafði ekki notað í mörg ár, spariskó,
hvíta nælonskyrtu og bindi af frænda hans. Jakkinn var allt of víður og buxurnar allt og stuttar. Áður en félagarnir fóru á Grillið fóru þeir í
Laugarásbíó og horfðu á mynd. Viktor sagði þjónunum að Páll og Óli væru frændur hans úr afskekktum dal norðan heiða og að hann
sjálfur væri fasteignasali að hjálpa þeim að selja jörð. Þjónarnir halda líklega að þeir séu skrítnir af því að þeir búa í sveit - það mætti kalla fordóma.
6. Hvað fannst lögregluþjóninum um þetta atvik?
Svar: Lögregluþjóninum fannst atvikið vera fyndið (hverjum myndi ekki finnast þetta fyndið???).
7. Hvernig brást Lúðvík læknir við? Hvernig haldið þið að Brynjólfur hefði brugðist við?
Svar: Lúðvík varð öskureiður, sagði að réttast væri að berja þá og kallaði þá úrþvætti. Brynjólfur hefði örugglega ekki orðið jafn reiður,
hann hefði frekar bara orðið svekktur en samt skammað þá því þeir brugðust trausti hans.
Byggt á svörum 10. bekkingja í Lundarskóla, haust 2014.