Spurningar og svör úr hlutum I og II í Englum alheimsins (bls. 9-54)
Hluti I (bls. 9-32)
1. Hvað varð um unga manninn sem Páll sér í byrjun sögunnar? Hvað segir Páll um heimspekinga?
Svar: Strákurinn fór inná Klepp. Páll sagði að heimspekingarnir gætu sagt „vesalings
raunveruleikinn, mikið hlýtur hann að eiga bágt“, en þeir sem lagðir eru inn á hæli
gætu ekki sagt neitt svoleiðis, þeir séu álitnir geðsjúklingar.
2. Greinið frá draumi Guðrúnar. Hvað táknar svarti hundurinn? En hestarnir?
Svar: Guðrúnu dreymdi að svartur hundur væri mjög ágengur við hana í strætisvagni.
Hún hljóp út úr honum og út á tún. Þar sá hún fjóra hesta sem henni fannst hún eiga.
Einn hrasaði og datt dauður niður. Hundurinn gæti táknað geðklofasýkina sem Páll er
með, eða ættarfylgjuna (draugur sem fylgir ætt) og hestarnir tákna líklega börn
Guðrúnar. Hesturinn sem dettur og deyr táknar Pál.
3. Hvar og hvenær fæddist Páll? Hvaða viðburður átti sér stað þann dag?
Svar: Páll er fæddur á fæðingardeild Landspítalans við Hringbraut þann 30. mars árið
1949, sama dag og Ísland gekk í NATO.
4. Hvernig er hægt að líta á að átökin á Austurvelli sem fyrirboða fyrir líf Páls?
Svar: Þegar hann fæddist voru strax erfiðleikar og átök í kringum hann, eins og hann
var í mestalla ævi sína.
5. Hvað starfar Ólafur? Hvað er hann að ná í til Gunnars stýrimanns? Er það löglegt?
Svar: Ólafur ók leigubíl. Hann náði í brjóstahaldara og smyglaði þeim inn „á tímum
hafta og skorts“, seldi svo í búðir.
6. Af hverju hélt María, amma Páls, að Ólafur væri drukkinn eða í annarlegu ástandi?
Svar: Hann var ringlaður út af táragasi sem sprakk beint fyrir framan hann á
Austurvelli, þar sem mótmæli voru í fullum gangi.
7. „Heimurinn varð allt í einu eins og smækkuð mynd af geðsjúkum manni, vitfirrtur og klofinn í tvennt...“ Hvað á Páll við með þessum orðum?
Svar: Að heimurinn væri að verða eins og geðsjúkur maður. Skiptist í tvo andstæða
hluta sem takast á um að ná yfirhöndinni. Kalda stríðið er í gangi á þessum tíma og
líkir Páll því í raun við geðklofasýkina sína.
8. Hvernig hafði pabbi Páls það í æsku sinni?
Svar: Hann ólst upp við mikla fátækt, í stórri fjölskyldu og í ótraustu húsi.
9. Hvers vegna læðast að Guðrúnu efasemdir um mann sinn?
Svar: Af því að vinkonur hennar sögðu henni að maðurinn hennar væri alltaf að
skemmta sér á Gúttó. Í ljós kom að þær rugluðu honum saman við bróður hans sem
var mjög líkur honum.
10. Segið frá Maríu, ömmu Páls. Hvers spyr læknirinn Guðrúnu og hvert er svar Maríu við því?
Svar: Hún kann mikið af sögum og vísum. Ein spurningin var hvort það væri geðveiki í
ættinni og María svaraði hvort það væri ekki geðveiki í öllum ættum.
11. Hvernig mundi sögumaður eftir afa sínum og hvað fær hann í afmælisgjöf frá honum?
Svar: Hann mundi eftir vísunni sem hann samdi handa Páli. Afi hans gaf honum þessa
vísu skrifaða niður og fallega frímerkjabók með fjölmörgum gömlum frímerkjum í á
átta ára afmæli hans.
Hluti II (bls. 33-54)
1. Hér er Páll kominn á Klepp. Hvernig hefur umhverfi spítalans breyst síðan hann var barn?
Svar: Trén umhverfis eru orðin stór, en ströndin klæðist berangrinu og hvílir sig í fangi
sandkorna og grjóts (s.s. bara sandur og grjót). Strandlengjan er full af lagerum og
skemmum. (Vistmenn voru í sérstökum búningum í gamla daga en núna mega þeir
vera í sínum eigin fötum. Þetta kemur seinna fram í bókinni).
2. Hvað segir Baldvin Bretakóngur um Pál? Hvað á hann við þegar hann segir að Páll hafi ekki gætt englanna sinna?
Svar: Hann sagði við Pál sem barn: „Yfir þessum litla dreng vaka englar.“ Sagði svo við
hann löngu seinna: „Þú hefur ekki gætt engla þinna“, og meinti með því að Páll hafði
ekki fetað rétta slóð í lífinu (hvort sem það sé honum að kenna eða ekki).
3. Páll er öruggur heima hjá sér. Hvernig upplifir hann heiminn handan múrsins?
Svar: Hann finnur fyrir óöryggi fyrir utan heimili sitt. Hann sér þrjár stelpur. Hann
stingur fingrunum á milli rimlanna og tekst að troða hendinni í gegn. Stelpurnar bíta
hann allar í fingurinn. Eftir að þær bitu hann fattaði hann að heimurinn er harður, það
breytti honum.
4. Hvernig myndir málar Bergsteinn? Hvað verður um þær? Hvers vegna verkjar Pál í eyrað þegar honum finnst hann vera van Gogh?
Svar: Bergsteinn málar landslagsmyndir. Það vill enginn kaupa þær því að Kleppur er
inni á þeim. Páli verkjar í eyrað, finnst hann vera van Gogh því að van Gogh skar af sér eyrað.
5. Segið frá leikjum drengjanna. Hvað kemur fyrir Þór?
Svar: Þeir léku sér oft niðri í kjallara og þar sýndi Siggi stundum riffil, í garðinum, í
indjánatjaldi og með trébáta. Þór skaut sig óvart í augað.
6. Segið frá Gulla og Sigga.
Svar: Gulli var tíu ára strákur, dökkhærður með stór innhverf augu og þessa löngu
handleggi og fætur sem hlupu hratt. Siggi er dökkhærður og brúneygður strákur.
Hann er tveimur árum eldri en Páll og Gulli (s.s. 12 ára).
7. Hvað gerði Ella feita eftir að Þór varð óvinnufær?
Svar: Ella hóf smákökubakstur og brauðgerð og seldi kökur og brauð. Seinna seldi hún
sína frægu bolluvendi.
8. Segið frá Stínu og Eyvindi.
Svar: Stína var dóttir Ellu feitu og hún var alltaf að biðja Pál um að hlusta á hjartslátt
sinn inni í indiánatjaldinu (Páll var samt ekki að hlusta á hjartað hennar). Eyvindur bjó
fyrir ofan Pál þegar Páll var lítill krakki og gerði Pál lafhræddan. Seinna lágu leiðir
þeirra saman þegar þeir leigðu í sömu Félagsmálastofnunarleiguhjallinum.
9. Hvað á sögumaður við þegar hann segir „Óttinn er alltaf í grenndinni?“
Svar: Hann á við að það liggi í loftinu að eitthvað slæmt geti gerst, öllum að óvörum.
Til dæmis það að Benni varð bráðkvaddur undir stýri.
10. Fékk Siggi skútuna? Af hverju/af hverju ekki?
Svar: Siggi fékk ekki skútuna af því að auðuga fjölskyldan vildi ekki láta slíkt ættargóss
ganga sér úr greipum.
Byggt á svörum 10. bekkingja í Lundarskóla, haustið 2014.