Spurningar út hlutum VI og VII í Englum alheimsins (bls. 107-156).
Hluti VI (bls. 107-132)
1. Hvernig lítur Páll út? Vel? Illa? Af hverju? Hvaða tilfinningar hefur hann í garð Dagnýjar?
Svar: Svar: Hann lítur illa út, hár hans úfið og skeggið vex og vex. Hann er þungur vegna lyfjanna (lyfjafitan). Páll elskaði Dagnýju svo heitt að hún var eins og strokleður um hjarta hans, þurrkaði burt allar aðrar stúlkur.
2. Hverja teljið þið ástæðuna fyrir því að Dagný vilji slíta sambandinu við Pál?
Svar: Dagný er mjög auðug/hátt sett og foreldrar hennar ríkir en Páll er ekki af auðugri ætt og þess vegna vilja foreldrar Dagnýjar ekki Pál sem tengdarson. Sennilegra er að Dagný sé orðin leið á Páli, hann er alltaf hjá henni, og hún þarf að einbeita sér að náminu.
3.-4. Lýsið herbergi Dagnýjar, útliti hennar og áhugamálum. Hvað var það við Dagnýju sem heillaði Pál? Hverra manna er Dagný? Hvernig er samband hennar við foreldra sína? Hvers vegna er hún með Páli? Er hann nógu góður fyrir hana? Hver er skoðun Rögnvaldar á Dagnýju og sambandi þeirra Páls?
Svar: Herbergi Dagnýjar er kjallaraherbergi með sérinngangi og eldhúskróki, hjónarúmi, skrifborði með lampa og bastkörfu. Pappírskiljur úti um allt. Dökkleitir andlitsdrættir, þykkt svart hár. Gekk frjálslega til fara, í gallabuxum og hermannajakka. Páli fannst hún frjálsari í fasi en aðrar stelpur. Pabbi Dagnýjar var háttsettur embættismaður en mamma hennar var einkar frúarleg. Dagný var með uppsteit gegn foreldrum sínum og vildi hvorki sækja fjölskylduboð né klæða sig eins og þau vildu að hún gerði, þess vegna var hún með Páli. Páll er ekki nógu góður fyrir hana, samkvæmt foreldrum Dagnýjar, enda bílstjórasonur. Rögnvaldur segir Dagnýju vera í yfirstétt og hún sé á tímabili núna sem er uppreisn gegn foreldrum sínum og svo mun hún fara að mennta sig vel og eignast góðan mann með eftirnafn.
5. Hvers vegna hættir Páll í menntaskólanum? Við hvað fæst hann um þessar mundir? Hvers vegna blekkir Dagný hann? Hvað gerir Páll í Tjarnarbúð og hvað finnst ykkur um hegðun hans?
Svar: Páll fékk óbeit á menntaskólanum meðal annars af því að höfuðverkurinn ágerðist og vanlíðanin jókst. Hann fór í myndlistarskólann og málaði myndir öllum stundum. Dagný blekkti hann af því hún hélt að hann myndi hætta að tala við hana ef hún gerði það. Í Tjarnarbúð ræðst hann að Dagnýju og herranum hennar, öskrar á þau og Páll og herrann slást. Hegðun Páls var vægast sagt óviðeigandi.
6. Segið sögu Rögnvalds eins og hún kemur í þessum kafla.
Svar: Rögnvaldur var bóndasonur úr Borgarfirðinum, var með Páli í MR, fór svo til Þýskalands að læra tannlækningar. Það eignaðist hann konu og tvö börn. Hann var fremur lágvaxinn og grannur, með skolleitt hár, hvorki sítt né stutt, oft úfið og ógreitt, og var ósköp venjulegur menntaskólastrákur í rykfrakka og með pípu.
7. Hvernig lítur Kata út? Hvert er samband hennar og Páls? Hvernig lýkur orðaskiptum Páls og Dagnýjar? Hvernig má skýra hegðun Dagnýjar?
Svar: Kata var þrýstin, glæsileg og með dökkt liðað hár niður á herðar. Páll og hún voru saman í menntaskóla. Hún og Páll nutu ásta en samband þeirra gekk ekki. Orðaskiptum Páls og Dagnýjar lauk með rifrildum og hnífur kom við sögu (en hann var nærri búinn að stingast í annaðhvort þeirra). Dagný var reið og í uppnámi, enda kolklikkaður náungi (að hennar mati líklega) að eltihrella hana (e. stalker).
8. Hvaða ofskynjanir og ranghugmyndir gera nú vart við sig í huga Páls?
Svar: Hann sá meðal annars mann sem var grænn í framan eins og sæskrímsli og það voru loðhundar út um allt. Fannst allir vera á eftir sér.
Hluti VII (bls. 133-156)
1. Hvað bendir til að sjúkdómur Páls sé enn að ágerast? Hvernig er samband hans við fjölskyldu sína?
Svar: Hann var til dæmis með ofsóknarbrjálæði og ranghugmyndir um sjálfan sig. Hann var uppstökkur og frekur og var fjölskyldan orðin hrædd við hann.
2. Hvers vegna eru foreldrar Páls fegnir komu Rögnvaldar? Hvað er að frétta af Arnóri? Af hverju er myndin sem Páll er að mála á vegginn hjá sér? Hvernig kemur Páll sér í vandræði um kvöldið og hvernig túlkar lögregluvarðstjórinn hegðun hans?
Svar: Því hann hafði varla farið út úr herberginu sínu í langan tíma. Arnór var farinn að læra lyfjafræði í Kaupmannahöfn og var heldur drykkfelldur. Myndin á veggnum hjá Páli var stór mynd af andliti manns. Því var skipt í ótal persónuleika. Úr öðru auganu skein brjálæði, en hitt var aðeins tótt. Beittur hnífur skar nef hans í sundur. Um kvöldið fór Páll út með hníf og hótaði fólki með honum. Lögreglustjórinn táknar hegðun hans óvenjulega miðað við aðstæður og ráðlagði honum að fara til læknis.
3. Hvernig líður Páli í kaflanum? Af hverju?
Svar: Hann var með mikinn höfuðverk, var þunglyndur og leið mjög illa. Ástæðan líklega sú að geðsýkin er að ágerast.
4. Hvað finnst Páli Guð segja sér? Af hverju leggur hann á flótta?
Svar: Honum finnst Guð segja að hann væri síðasti maður jarðarinnar og ætti að breyta herberginu sínu í örk. Hann leggur á flótta til að komast frá öllu, mest vegna ofsóknarbrjálæðis.
5. Hvernig eru ytri aðstæður Rögnvaldar? Hvað bendir til að hann hafi átt við innri erfiðleika að stríða? Hvernig deyr hann? Hvað varð um Arnór? Hvað er átt við með orðunum: “Kleppur er víða”?
Svar: Rögnvaldur átti konu og börn, var ríkur tannlæknir og átti flottan jeppa, og leit út fyrir að vera hamingjusamur. Rögnvaldur segir að það sé nógu erfitt að halda sjálfum sér réttum megin við strikið þegar Páll sagði að Rögnvaldur hefði læknað hann. Rögnvaldur deyr líklega með því að keyra fram að klettabrún. Arnór lauk aldrei lyfjafræðinni, lagðist í drykkju, var hálftýndur í nokkur ár en innritaði sig síðan í guðfræðideild Háskólans. “Kleppur er víða” þýðir líklega að geðveikin sé víðar, ekki aðeins á Kleppi, heldur í öllu lífinu, alls staðar.
6. Hvern sjá foreldrar Páls ganga í átt að Kleppi? Hvers vegna slútir höfuð hans fram?
Svar: Þau sjá Brynjólf geðlækni ganga með þungt höfuð því hann gengur með sjúklingana á herðum sér.
7. Hvað gerir Páll í þessum kafla? Hvað er hann að hugsa um að starfa við? Af hverju?
Svar: Páll fer heim til sín eftir vistina á Kleppi. Hann sest út á tröppur í sófastól og byrjar að lesa klámblað og drekka hvítvín. Hann er að hugsa um að verða rithöfundur og skáld til þess að geta skrifaðum Klepp.
8. Hvernig brást Ólafur við beiðni Páls um peninga og hvers vegna? Hverjar urðu málalyktir?
Svar: Ólafur brást illa við beiðni Páls um peningana því honum fannst hann ekki neitt við peninga að gera. Páll verður mjög reiður og hrindir eldhúsborðinu um koll og hristir pabba sinn. Ólafur gefur honum pening að lokum og Páll hleypur út með útvarpið með sér og ætlar til Bandaríkjanna.
9. Hvert fór Páll um nóttina og í hvernig ástandi var hann? Hver tekur á móti Páli á spítalnum og hvað gerist þegar inn er komið?
Svar: Páll hlóp í átt að Keflavíkurflugvelli og ætlaði til BNA en lögreglubíll sækir hann og skutlar honum á Klepp. Páll er berfættur og rennblautur. Vilhjálmur tekur á móti Páli og ætlar að taka útvarpið af honum en þá ræðst Páll á hann og er að lokum sprautaður niður.
Byggt á svörum 10. bekkingja í Lundarskóla, haustið 2014