Spurningar úr hluta III, IV og V í Englum alheimsins (bls. 55-104)
Hluti III (bls. 55-66)
1. Hvað merkja orð Makbeðs? Hvers vegna höfða þau sérstaklega til Páls?
Hvernig er Páll fluttur á geðspítalann? Fer hann þangað sjálfviljugur?
Svar: Orð Makbeðs gætu þýtt að lífið sé þungt og erfitt leikrit. Páli finnst lífið
erfitt og finnur til í höfðinu sbr. „Getur þú [...] afmáð þá kvöl sem er á heilann skráð.
2. Hvað hafa strákarnir fyrir stafni 17. júní? Hvaða riffil eru þeir með?
Svar: Þeir eru að skjóta máfa meðfram ströndinni með riffli pabba Sigga og Jóa.
3. Lenda strákarnir í vandræðum hjá lögreglunni? Hvern var lögreglan að koma með?
Losuðu þeir sig við hann?
Svar: Strákarnir lenda ekki í vandræðum af því að lögreglan var að fara með stúdent á Klepp.
Kleppur neitaði að taka við honum og hann þurfti að fara aftur niður á stöð.
4. Segið sögu sturlaða stúdentsins.
Svar: Hann mætti krúnurakaður með flugbeittan hníf á stúdentafagnað við MR.
Fara átti með hann á Klepp en hann þurfti aftur á lögreglustöðina. Hann var svo vistaður í
sérstökum klefa í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Þar lamdi hann hausnum í vegg svo
blæddi úr og beit einnig tunguna af. Seinna var hann lagður inn á Klepp og dó nokkrum vikum seinna.
Seinna kom í ljós að hann var með heilaæxli sem hafði þrýst á heilann.
Hluti IV (bls. 67-81)
1. Hvernig var ástand og aðstaða sjúklinganna fyrir daga geðlyfjanna?
Svar: Fyrir daga lyfjanna voru sumar deildirnar bara stórir salir þar sem sjúklingar gengu naktir um gólf.
Ekki mátti hengja á veggina eða hafa blóm út í gluggum. Saur úr sjúklingunum var á gólfinu.
2. Af hverju kallar Ragnar, föðurbróðir Páls, Klepp dýragarð? Í hverju felst gagnrýni hans á umönnun sjúklinganna?
Svar: Farið er með sjúklingana eins og dýr, þeir látnir vera naktir og gera þarfir sínar úti um allt.
Gagnrýni Ragnars felst meðal annars í því að læknarnir láti ekki sjá sig í marga daga
en koma svo með skipanir úr þægindum skrifstofu sinnar.
3. Hvaða ár er Ragnar fæddur? Af hverju var hann rekinn? Hvers vegna gaf hann sjúklingnum það sem hann gaf honum?
Svar: Ragnar fæddist árið 1914 (þegar fyrri heimsstyrjöldin hófst). Hann gaf sjúklingi jólaköku, kaffi og sígarettu.
Ragnar vildi vera góður við sjúklinginn af því aðrir voru vondir við hann. „Það er nefnilega þetta með vitið í óvitinu.
Ef allir eru vondir við þig hefurðu engan til að vera góður við. Þetta skilja sjúklingarnir. Þó að vitsmunir þeirra séu
brenglaðir slær hjartað í þeim eins og í öllum öðrum.“
4. Segið frá ævintýri strákanna. Hvernig björguðust þeir?
Svar: Þeir fóru á lélegan bát, pramma, sem þeir bjuggu sér til sjálfir. Hann rak út á haf og sökk næstum
en þeim var bjargað af Steinunni gömlu sem lét foreldra þeirra vita og Óli gamli trillukarl og faðir Palla sóttu þá.
5. Hvernig myndir málar Gulli? Hver segir Bergsteini að breyta Kleppi í kú eða fela hann á bak við tré?
Svar: Gulli málar helst sjóinn og fjöruna. Kúddi, sem á verkstæðið, segir Bergsteini að breyta Kleppi.
6. Hvers konar stofnun var Kleppur á fyrstu árum spítalans og hvað gerðu þeir sjúklingar sem töldust vinnufærir?
Hverja telur Gulli helstu áhrifavalda sína í listinni? Á hverju byggðust vatnalækningar og hvernig virkuðu þær á líkamann?
Svar: Kleppur var stórbýli með kúabúi, fjárbúi, svínabúi og alifuglabúi. Sjúklingarnir sinntu bústörfum
meðfram veikindum sínum. Gulli telur Baldvin Bretakóng og Grétu sína helstu áhrifavalda. Vatnalækningar
byggðust á heitum og köldum böðum og vatnsdrykkju. Vatnið hafði áhrif á innkirtlastarfsemi líkamans og gerði
sjúklinga ónæma fyrir farsóttum og smitsjúkdómum.
7. Hvaða áhrif hafa lyfin á Pál þegar hann er fyrst lagður inn á Klepp? Er eitthvað sem bendir til þess að honum sé
gefið of mikið af lyfjum? Af hverju var það gert?
Svar: Páll getur ekki tjáð sig né hreyft sig, hann situr á stól eins og slytti. „Nú eru páskar og mikið af starfsfólki í fríi
og ef við eigum að hafa sjúklingana rólega verðum við að gefa þeim lyf, annars er enginn starfsfriður.“
Hluti V (bls. 83-104)
1. Hvar er Páll í þessum kafla?
Svar: Inni á Kleppi. „Nú er ég inni í höllinni, sem Bergsteinn stóð og málaði...“
2. Hvað á Páll mörg systkini? Hver var Pétur, hvar bjó hann og hvað gerði hann helst á daginn?
Svar: Páll á þrjú systkini, tvo bræður og eina systur (sem er á leiðinni). Pétur var einbúi og bjó á
Hvalsnesi í Skagavík. Hann hafði samneyti við enska skipshöfn frá 16. öld og sat inni í bæ við
fræðastörf en sýslaði lítið við búskap nema hvað hann mjólkaði þessar tvær kýr sem hann átti og
hleypti draugnum út um skemmudyrnar oft á dag.
3. Hvern hitta þeir á Króknum? Segið aðeins frá honum.
Svar: Þeir hitta Keisara norðurljósanna á Króknum (í fyrsta sinn). Hann er með vel snyrtan hökutopp
og yfirskegg, skreyttan staf og hatt á höfðinu. Allt í kringum hann voru börn, inni í hestvagninum og
umhverfis hann. Hann málaði allt sem fyrir varð; veggi, hurðir og rúmbotna. Allt í allt mjög aktívur maður.
4. Hvað er að gerast í fjórða kafla?
Svar: Dimm ský og tungl voru á himni. Stórt skip var komið í víkina sem Pétur og strákarnir héldu að væru Rússar.
Pétur byrjaði að skjóta á það með riffli en í ljós kom að þetta var Landhelgisgæslan. Vandró.
5. Hvert er Páll kominn nú? Hvað þýðir: „Þú ert ansi drátthagur?" Hvernig er samband Páls og Ólafar?
Svar: Páll er kominn í Kirkjumýri til Stefáns bónda. Að vera drátthagur þýðir að vera góður að teikna.
Samband Páls og Ólafar var vægast sagt náið, þau voru hrifin af hvoru öðru, kysstust og sváfu saman!
6. Hvað var breytt eftir vist Páls í sveitinni?
Svar: Páll hafði eignast litla systur og fjölskyldan flutt í nýja íbúð. Páll var líka breyttur maður
eftir að hafa misst sveindóminn. Við sjáum líka í næsta kafla að vinir hans eru fluttir annað.
7. Hvernig tekur Jói á móti Palla, hvernig er viðmót hans? Af hverju finnst Páli heimurinn vera að hrynja?
Svar: Jói hafði engan áhuga á því sem Palli var að segja. Tveir strákar stríða Páli og enginn kemur til hjálpar.
Þá brotnar Páll niður. Byrjunin á geðveikinni? Eða lokanaglinn í geðveikiskistuna?
Byggt á svörum 10. bekkingja í Lundarskóla, haustið 2014